Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1095, 132. löggjafarþing 461. mál: hlutafélög (EES-reglur, upplýsingaákvæði).
Lög nr. 18 12. apríl 2006.
Þingskjal 1095, 132. löggjafarþing 461. mál: hlutafélög (EES-reglur, upplýsingaákvæði).
Lög nr. 18 12. apríl 2006.
Lög um breytingu á lögum nr. 2/1995, um hlutafélög, með síðari breytingum (upplýsingaákvæði).
1. gr.
Við 8. mgr. 1. gr. laganna bætist nýr málsliður sem orðast svo: Upplýsingar samkvæmt þessari málsgrein skal einnig gefa á vef hlutafélaga og útibúa þeirra ef til er.2. gr.
2. málsl. 2. tölul. 153. gr. laganna orðast svo: Sama gildir um brot á reglum um hlutafé í erlendum gjaldmiðli skv. 4. mgr. 1. gr. og upplýsingagjöf skv. 8. mgr. 1. gr.3. gr.
Lög þessi byggjast á upplýsingaákvæðum tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2003/58/EB frá 15. júlí 2003 um breytingu á tilskipun ráðsins 68/151/EBE að því er varðar birtingarskyldu félaga af tiltekinni gerð.4. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2007.Samþykkt á Alþingi 3. apríl 2006.